Thursday, January 31, 2013

Frábær, fimmtán mínútna febrúar :)

Nýtt og flott ár komið. Ég tók janúar í að taka út sykurskammt heils árs og kvótinn er hér með búinn. Nú er það flottur, fagur, frábær, fabjúlös febrúar sem er næstur og á hverjum degi mun ég að sjálfsögðu fá mér hristing og einnig hrista á mér bossann eða dansa og leika við börnin eða gera styrktaræfingar í FIMMTÁN mínútur þegar vel viðrar, annars FIMM... Er nokkuð ofmat að hafa tvö markmið? Eða eiginlega þrjú.. ef sælgætið á að vera úti líka... Nei nei ég tækla það vel.

1. FIMM mínútur í djass og dans og dúller í á hverjum degi, lágmark!
2. Blanda ofurdrykk á hverjum degi
3. Borða næstum allan heimsins mat, bara ekki sælgæti og súkkulaði

Hlakka til. Elska að drekka svona ofursmoothie alla daga og hlakka núna mest til að losna við sykurpúkann sem er svo svakalegur þegar hann kemst í gírinn! Jeij!

Hér er einn gulur og góður:


Í uppáhaldi núna er sérstaklega mangó og svona suðræn blanda ásamt tahini, kanil, kókos, höfrum og ab mjólk... 

Og núna á ég bæði spínat og avocadó... ætti kannski að nýta það í einn grænan og góðan, hef ekki fengið mér þannig síðan í fyrra ;) 

Njótum lífsins! 

No comments:

Post a Comment