Wednesday, October 31, 2012

31. október

Sléttir tveir mánuðir eftir af þessu ágæta ári. Ég ætla mér að hugsa vel um heilsuna og koma mér upp góðum venjum til að færa með mér yfir á næsta ár :)

Er að klára góðan morgunsmoothie: jarðarber, banani, bláber, hafrar, kanill, kókos, vanilla, daðla, ab mjólk, rísmjólk, möndlusmjör. Ótrúlega góður.

Góð byrjun á góðum degi. Svo er það göngutúr með manni og barni og stefnan er sett á grænan heilsusafa í hádeginu og rauðrófusalat... meira um það á eftir :)


Held áfram smoothiegerð...

Nú er október senn á enda og ég er orðin skemmtilega vön því að fá mér smoothie í morgunmat :) Það er flott! Í morgun fékk ég mér ofursmoothie með höfrum og kókos og olíu og möndlum og öllu sem prýða má seðjandi morgunverð. Núna, eftir smá æfingu, er ég að drekka ferlega ljótan epla, spínat, sítrónu, appelsínu, kirsuberja smoothie... sem er mjög góður :)

Ég þarf að komast í síma með góðri myndavél sem ég get notað til að taka myndirnar, nenni ekki alltaf að vera með myndavélina mína, sem er líka frekar leiðinleg, á fartinni. Markmiðið fyrir nóvember verður að minnka sykur hjá mér og auka ofurhollan mat og vera dugleg að búa hann til sjálf.

Úúú, ég er reyndar að fara að fá nýja tölvu sem mun auðvelda málin enn frekar, jeij. Kannski verð ég bara matarbloggari eins og er svo vinsælt núna!

Friday, October 19, 2012

ég er ekkert hætt...


Jæja, ég er nú ekkert að mastera þessar færslur! En oh jæja, í dag, 19. október fékk ég ágætan smúþí í hádegisverð (það var latte og croissant í morgunverð!): banani, plómur, mangó, olía, möndlur, hrísmjólk og goji.


Svo er hér mynd af einum frá því í gær... í honum voru bláber og kirsuber og eitthvað ;) Og svo höfum við drengurinn gert nokkra sæta og góða úr banana, kirsuberjum og hindberjum, þunna og góða svona seinnipartinn eftir leikskóla :)








Monday, October 15, 2012

15. október

Mánudagsmorgundrykkurinn var góður: Kirsuber, mangó, banani, hrákakó, kanill, hafrar, möndlur, döðlur, goji, ab mjólk og hrísmjólk. Ummmm.

Saturday, October 13, 2012

12 og 13 dagur meistaramánaðar

Í gær, föstudag, gerði ég ótrúlega góðan sætan sjeik í morgunmatinn: banani, kirsuber, hindber, ab mjólk, rísmjólk og smá ribena. Hann var skærbleikur og yndislegur.



Nú í morgun gerði ég orkuríkan og góðan fjólubláan drykk... sem ég held ég hafi gleymt að taka mynd af... í honum var: plómur, mangó, bláber, haframjöl, kókosmjöl, olía, möndlusmjör og sojamjólk.

Thursday, October 11, 2012

11. október

Nú í morgun gerðist ég græn og væn og kláraði frosna spínatið sem ég átti í frystinum... klárlega mesta  C vítamínbomban sem ég hef gert þennan mánuðinn: spínat, kirsuber, kíví, bláber, sítrónusafi, gulrótarsafi og eplasafi. Hann var dökkfjólublár og fínn, dáldið hollur á bragðið ;)


10 október...

Myndatakan bara gleymdist þennan morguninn... en drykkurinn var mjög hollur og næringarríkur: banani, mangó, jarðarber, kókos, olía, lucuma, hafrar, eplasafi og ab mjólk :)

Tuesday, October 9, 2012

6-9. október... einum smoothie of lítið

Góðan daginn!

Ég var ekki heima um helgina og einn daginn var enginn smoothie, en ég bjó þó til tvo smoothie einn daginn svo það kemur ekki að sök!

6. október, það var þessi hér, bæði fyrir mig og barnið:


Maður verður að blogga á hverjum degi... því ég man ekkert hvernig samsetningin var, en kirsuber voru þarna með!

7. október var smoothielaus...

8. október var í gær, og ég er næstum búin að gleyma hvað var í honum þessum! En það voru hafrar og olía og plómur og banani og sitthvað fleira! Og þessum fylgdi heitur kvefbani með trönuberjum og sítrónu...



Í dag er 9. október og í morgun gerði ég ótrúlega góðan morgundrykk: banani, bláber, mangó, olía, kókos, lucuma, goji, möndlur, apríkósur, ab mjólk, eplasafi og kanill. Þessi var eðal.


Fyrr í morgun var ég líka búin að þamba tvo bolla af heitu sítrónuvatni :) Og mín bíður hafra og chiagrautur inni í ískáp... næser!

Já, og ég veit að myndirnar eru ekki að gera neinar gloríur hjá mér! humm....


Friday, October 5, 2012

fimmti október

Í morgun bjó ég til bleikan smoothie eins og svo oft. Í honum var: jarðarber, banani, mangó, ab mjólk, rísmjólk, kókos, olía og smá lucuma. Ég hafði hann kaldan og þykkan.




4

Fjórði smoothíinn var gulur og góður: banani, mangó, plómur, kókos, olía og fullt af möndlum.

Hér er loks mynd af þeim gula:

Wednesday, October 3, 2012

3. dagur meistaramánaðar

3. október og nú í morgun var gerður einn kvefbana smoothie sem í var: kirsuber, bláber, sítróna, trönuberjasafi, appelsína, engiferte og engiferkraftur.

Svo gerði ég mér ótrúlega sætan og góðan morgunsmoothie úr: banana, kirsuberjum, jarðaberjum, ab mjólk, lífrænni mjólk, möndlusmjöri, olíu, kókos og dropa af hunangi. Very næs.

Verð að súpa á kvefbananum það sem eftir lifir dags... nenni ekki þessu sleni.


Tuesday, October 2, 2012

2 var góður

Smoothie númer 2 þennan mánuðinn var bleikur og góður. Hann samanstóð af banana, hindberjum, mangó, kókos, ab mjólk, hrísmjólk og trönuberjasafa.


Það hefur verið soddan matarlúxustíð á mér síðustu daga að næstu daga verður örugglega bara grjónagrautur og grænmeti. Í dag hefði ég getað tekið mynd af geeeðveiku sushi, búlluborgara og bakaríismat...

Þennan meistaramánuð dreg ég líka miða upp úr boxi á hverjum degi og geri það sem þar stendur. Það eru bara litlir hlutir eins og að hringja í gamla frænku, dansa við nokkur lög eða gera smá jóga en góðir hlutir að gera engu að síður :) Í dag spjallaði hringdi ég og spjallaði við tvær frænkur!

Lýst vel á þennan mánuð. Hann verður svolítið nýr og öðruvísi hjá okkur en vonandi góður mánuður.


Monday, October 1, 2012

1 jeij

Meistaramánuðurinn október er hafinn! Allir í stuði og þar sem ég var á flakki með myndavélina í morgun eru hér myndir af öllu því gómsæta sem ég nærði mig á í dag!

Smúþí morgunsins var "hraðferð" þar sem ég smellti á núlleinari höfrum-kókos-möndlum-ávöxtum-hrísmjólk-trönuberjasafa og hörfræolíu i blenderinn og fór svo að gaf brjóstabarninu óþolinmóða að drekka. Hann var fjólublár, orkuríkur og fallegur :)


 Á flakkinu fékk ég mér smakk af bæði larabar banana, sem er bara lalala.. og larabar lemon, sem er æði :)


Í smá stoppi hjá ma&pa fékk ég tvær góðar sneiðar af gómsætu döðlu/bananabrauði



Og svo leyfði ég mér vel heitan sojalatte og croisant á bókakaffi, lúxuslíf í dag :)